Aprílgabb: Yfirlýsing og stefnuskrá
Frá því að Matthías Ásgeirsson varð formaður Vantrúar í lok árs 2006 hefur félagið breytt um stefnu. Ekkert má lengur segja eða gera sem ekki er “jákvætt” eða “uppbyggilegt” eftir ráðgjöf ímyndarráðgjafa sem Matthías réði á kostnað félagsmanna. Um þverbak keyrði nú í nóvember síðastliðnum þegar Birgi Baldurssyni fyrrverandi formanni og stofnanda félagsins var bolað úr stjórn. Við höfum reynt að taka þessu með ró og reyna að verja félagið álitshnekkjum en nú verðum við að segja að nóg sé komið. Matthías tranar sér fram í fjölmiðla og lætur eins og skoðanir hans endurspegli á allan hátt skoðanir félagsmanna.
Við undirrituð höfum ákveðið að kljúfa okkur úr Vantrú. Við gerum þetta af illri nauðsyn. Þrír úr okkar hóp stofnuðum Vantrú og það hryggir okkur að skilja við félagið. Við vonum að fleiri muni fylgja í kjölfarið og við munum byggja upp nýtt vefrit sem mun vinna ötullega að því að koma ríkiskirkjunni á kné. Vefrit sem er óhrætt að móðga trúaða og sinnulausa einstaklinga sem reyna að koma í veg fyrir trúleysisvæðingu samfélagsins. Kannski verður í framtíðinni rúm fyrir sameiningu Andkristni og Vantrúar en það verður ekki fyrr en Matthíasi og klíku hans verður komið frá völdum.
Það er of mikið um að trúleysingjar gefi afslátt á skoðunum sínum. Richard Dawkins er gagnrýndur fyrir að ganga of langt þegar hann talar um trúarbrögð en í raun gengur hann of skammt. Trúarbrögð eru rót alls ills og við þurfum að öskra það hátt. Við þurfum að koma þessum boðskap í grunnskólana og menntaskólana. Við þurfum að mennta fólk sem er of heimskt til að skilja.
Við þurfum róttækari aðgerðir gegn kirkjunni. Við þurfum að útrýma kristnum helgidögum úr hinu opinbera almanaki. Fólk ætti að vinna á aðfangadag, jóladag og föstudaginn langa eins og aðra virka daga. Helst ættum við að endurskipuleggja tímatalið í heild sinni á rökrænan hátt. Við ættum að hætta að miða við fæðingarár hins ímyndaða asna guðs og miða þess í stað við fæðingardag Charles Darwins sem leiddi okkur út úr hinum myrku miðöldum.
Það er komið að því að ganga alla leið og útrýma trú í eitt skipti fyrir allt. Annað hvort ertu með okkur eða gegn. Það er enginn millivegur á milli fáfræði og upplýsingar.
Bráðabirgðastjórn Vefritsins Andkristni,
Birgir Baldursson, Teitur Atlason, Kári Svan Rafnsson, Frelsarinn og Aiwaz.
Matti mjúki? Kommon! Það virkar ekkert annað en að vera mjúkur sem og málefnalegur. Íslendingar bera svo mikinn hlýhug til kristninnar að maður verður að nota vettlingatök.
Comment by LegoPanda — 1. April 2008 @ 17:25